26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4456 í B-deild Alþingistíðinda. (3821)
103. mál, Landsbanki Íslands
Sigurður Eggerz:
Jeg vildi aðeins taka það fram, að það, sem fyrir mjer vakir, er ekki það, að jeg telji það eftir mjer að sitja hjer við umr. En mjer finst, að það muni vera illa til fallið að fara þannig yfir þetta mál, að það verði afgr. eftir að kl. er farin að ganga 12 að nóttu. Jeg tel sjálfsagt, að svo verði vandað til meðferðar á svo merkilegu máli sem þetta er, að menn sjeu ekki þreyttir og úrvinda sökum svefnleysis við afgreiðslu þess.