27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (3843)
103. mál, Landsbanki Íslands
Ólafur Thors:
Jeg vil aðeins geta þess, að á þeim tíma get jeg ekki mætt á nefndarfundum, og hygg jeg, að svo geti verið um fleiri nefndarmenn. Enda finst mjer undarlegt að fara nú að breyta fundartíma nefnda, þegar svo er orðið áliðið þings, og leyfi jeg mjer að mótmæla því algerlega. Sýnist mjer eins hægt að hafa umræðufundum þannig, að nefndin geti fengið tíma til starfa á tilsettum tíma.