27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4496 í B-deild Alþingistíðinda. (3848)

103. mál, Landsbanki Íslands

Halldór Stefánsson:

Jeg mun ekkert hlutast til um það, hverja tilhögun Alþingi vill hafa á starfsháttum sínum. En jeg vil aðeins geta þess, að jeg legg ekki mikið upp úr því, að henni sje ætlað að hafa fundi á öðrum tímum en þeim, sem henni hafa verið úthlutaðir af forsetum og samvinnunefnd, eins og þingsköp standa til.