12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4647 í B-deild Alþingistíðinda. (3878)
103. mál, Landsbanki Íslands
Forseti (BSv):
Í 37. gr. þingskapa segir svo:
„Ef umræður dragast úr hófi fram, getur forseti stungið upp á, að þeim sje hætt, og sker þingdeildin úr því umræðulaust. Sömuleiðis geta 3 þingmenn í efri deild, 6 í neðri deild og 9 í sameinuðu þingi krafist þess, að greidd sjeu atkvæði um, hvort umræðum skuli lokið — —“.
Samkvæmt þessu verða ekki leyfðar umræður um tillöguna, en eftir öðrum greinum þingskapa er jafnan heimilt að gera stuttar athugasemdir um gæslu þingskapa og um atkvæðagreiðslu. Verða aðeins slíkar athugasemdir leyfðar áður en gengið er til atkvæða.