12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4650 í B-deild Alþingistíðinda. (3885)

103. mál, Landsbanki Íslands

Gunnar Sigurðsson:

Jeg skal halda mjer innan ramma þingskapanna. Mjer virðist ómögulegt að segja með nokkrum sanni, að umræðurnar hafi dregist úr hófi fram að þessu sinni. Sýnu nær hefði verið að bera fram slíka tillögu sem þá, er hjer liggur fyrir, við 2. umr. málsins. — Jeg get ekki greitt till. mitt atkvæði og efast um, að forseti eigi að taka hana til greina eftir þingsköpum.