20.01.1928
Neðri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (39)

Kosning fastanefnda

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi aðeins láta þá skoðun mína í ljós, að mjer finst það ekki nema fullkomin sanngirni, að beðið sje að minsta kosti til mánudags með þetta mál. Hafi nefndin ekki lokið störfum sínum þá, nær það ekki lengra. Hjer getur ekki verið að ræða um töf, sem nokkru skifti.