23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4733 í B-deild Alþingistíðinda. (3946)

72. mál, dómsmálastarf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Magnús Guðmundsson:

Jeg leyfi mjer að beina þeirri ósk til hæstv. stj., að hún láti þeirri nefnd, er fær þetta mál til meðferðar og sennilega verður allshn., í tje sundurliðaða skýrslu um það, hvernig hún hefir fengið út þá upphæð — ef jeg man rjett, 80 þús. kr. —, sem tekið er fram í stjfrv., að sá sparnaður muni nema, er leiðir af því fyrirkomulagi, er frv. gerir ráð fyrir.