16.04.1928
Efri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4775 í B-deild Alþingistíðinda. (3990)

100. mál, einkasala á áfengi

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv. er komið aftur frá háttv. Nd., og hefir hún gert á því ekki veigamiklar breytingar. Jeg tel þessar breytingar þannig vaxnar, að þær hafi ekki veruleg áhrif á gildi þessarar lagasetningar, og verð því að leggja til, að þessi hv. deild samþykki frv. eins og það liggur nú fyrir.