06.02.1928
Neðri deild: 15. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4812 í B-deild Alþingistíðinda. (4032)

64. mál, hvalveiðar

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þetta frv. hefir tvisvar áður komið fyrir þessa hv. deild og jafnan átt hjer miklu fylgi að fagna. Hinsvegar hefir hv. Ed. orðið þröskuldur á vegi þess, en þó ekki meiri en svo hið síðara skiftið, að það fjell þar með jöfnum atkv., að fjarstöddum tveim fylgismönnum málsins.

Jeg vænti því, að frv. verði nú, ekki síður en áður, vel tekið og skal ekki hafa þennan formála lengri, en vil aðeins leggja til, að málinu verði vísað til hv. sjútvn.