27.01.1928
Sameinað þing: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (4109)

Kjörbréf Jóns Auðuns Jónssonar

Sigurður Eggerz:

Það er viðurkent af hæstv. dómsmrh., að hinn ráðandi flokkur landsins hefir eftir bankastjóraskipunina tvisvar sinnum boðið mjer að vera forseti sameinaðs þings. Enda var það svo, að eftir að jeg skýrði frá öllum rökum í þessu máli í Dalasýslu, var það til þess eins að bæta fyrir mjer, en ekki spilla.