17.04.1928
Efri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4869 í B-deild Alþingistíðinda. (4140)

Starfslok deilda

forseti (GÓ):

Þá er nú störfum deildarinnar lokið að þessu sinni, og vil jeg, áður en jeg slít þessum 73. fundi hennar, þakka öllum hv. deildarmönnum fyrir góða samvinnu og greiða afgreiðslu hinna mörgu mála, sem deildin hefir haft til meðferðar, sem hvorttveggja hefir stuðlað að því að gera mjer forsetastörfin miklu ljettari en jeg hafði búist við.

Óska jeg svo öllum hv. deildarmönnum gleðilegs sumars, og þingmönnum utan af landi góðrar heimferðar og heimkomu og að við megum allir heilir hittast á næsta þingi.