26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4861 í B-deild Alþingistíðinda. (4168)
Starfstími fjárhagsnefndar nd
Forseti (BSv):
Þar sem nú er mjög merkilegt mál til umræðu, sje jeg eigi, að unt sje að gera breytingu þá, sem hv. 1. þm. N.-M. fer fram á, í þetta sinn. Annars tel jeg fremur varhugavert að setja deildarfundi kl. 11 árd. Vaka hv. þdm. löngum við umræður fram á nætur, og er þá naumast gerlegt að svifta þá þeim tíma, sem þeir helst gætu notað til hvíldar. Vildi jeg leyfa mjer að skjóta því fram, að fremur gæti komið til mála, að hv. fjhn. hefði sjálf fundi á þeim tíma. En væntanlega verður hægt að ná samkomulagi um þetta efni utan þingfunda.