23.02.1928
Efri deild: 30. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (452)

6. mál, laun embættismanna

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Jeg hefi lítið að segja um þetta mál fram yfir það, sem er í nál. Enginn ágreiningur hefir orðið í nefndinni um, að málið ætti fram að ganga. Frv. sjálft er svo ljóst, að jeg sje ekki ástæðu til að orðlengja um það.