23.01.1928
Efri deild: 4. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (459)

11. mál, fræðslumálanefndir

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Spurning þessi er alveg rjettmæt. Það er gert ráð fyrir því, að nefndin vinni kauplaust. Er það ekki harðara að göngu fyrir hana en t. d. Þingvallanefndina, sem vinnur nú kauplaust. Sama ætti að geta gengið yfir þessar nefndir, sem frv. gerir ráð fyrir.