03.02.1928
Neðri deild: 13. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (499)
20. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum
Frsm. (Hjeðinn Valdimarsson):
Eins og tekið er fram í nál., er frv. þetta borið fram af stjórninni samkv. þál. Nd. á síðasta þingi. Frv. er í 4 köflum. Í 3 fyrstu köflunum er greint sundur, hvernig eftirlitið skuli vera, en í 4. kaflanum eru almenn ákvæði. 1. og 2. kafli eru sniðnir eftir dönsku verksmiðjulögunum frá 1913, en jafnframt höfð hliðsjón af lögum nr. 37 1922, um eftirlit með skipum og bátum. 3. kaflinn, um eftirlit með vjelum á landi, er bygður á tillögum Verkfræðingafjelags Íslands, er ríkisstjórninni bárust í árslok 1926. Ætlast er til, að ákvæði 1. og 2. kafla verði síðar nánar afmörkuð með reglugerð, og það því fremur, sem þesskonar löggjöf er ný hjer á landi og ætla má, að hana þurfi smámsaman að sníða eftir hinum sjerstöku staðháttum hjer.
Nefndin hefir ekkert verulegt að athuga við frv. og leggur til, að það verði samþykt óbreytt. Þess skal þó getið, að hv. 1. þm. Skagf. (MG) var ekki viðstaddur á nefndarfundi, og veit jeg ekki um afstöðu hans.
Prentvilla hefir slæðst inn í frv. á bls. 4, 15. gr., og vona jeg, að skrifstofan leiðrjetti hana.