24.01.1928
Neðri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
1. mál, fjárlög 1929
Pjetur Ottesen:
Aðalstörf fjvn. eru enn sem komið er ekki önnur en þau, að nefndin hefir kosið sjer formann og skrifara. En þótt kosningu hefði verið frestað til mánudags, þá hefði hún vitanlega farið fram fyrri part dags, svo að hún hefði getað haldið fund að kveldi, því að venjulegur fundartími fjvn. er ákveðinn síðari hluta dags, frá kl. 5–7. Frestunin hefði því engin áhrif haft á vinnubrögð nefndarinnar.