14.03.1928
Efri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (786)
10. mál, sundhöll í Reykjavík
Frsm. (Jón Þorláksson):
Út af brtt. hv. 2. þm. N.-M. (PH) vil jeg leiða athygli að því, að í frv. eru gerðar kröfur um ókeypis notkun sundhallarinnar fyrir nemendur í þeim skólum, sem landið kostar að meira eða minna leyti og eru því skólar fyrir landið alt, en ekki Reykjavík eingöngu. Má segja, að allir skólar, þar sem ekki eru til fleiri en einn í hverri grein, sjeu í Reykjavík. Hjer er háskóli, kennaraskóli, sjómannaskóli. vjelstjóraskóli, verslunarskóli; hjer er sá eini iðnskóli, og þannig mætti halda áfram að telja þá, sem frv. veitir þessa tryggingu, og það er allstór hópur manna af öllu landinu.
Hygg jeg, að meiri hl. líti svo á, að það sje ekki óeðlilegt hlutfall, sem stj. hefir stungið upp á, þegar tekið er tillit til þess, að fyrirtækið er til mikilla þarfa fyrir land alt og Reykjavík á kröfu til þess, bæði vegna fjölmennis og eins vegna þess, að ekki hvað minst geldst í ríkissjóð þaðan, að ríkissjóður leggi fram töluvert fje til þessa fyrirtækis.
Annars vil jeg þakka hv. 2. þm. N.-M. (PH) fyrir það, að hann kvaðst mundu greiða frv. atkv., þótt till. hans yrði ekki samþ., en um leið verð jeg að lýsa yfir því fyrir hönd meiri hl., að við leggjum á móti þeirri till., en væntum þess fastlega, að frv. fái góðan byr í deildinni.