19.03.1928
Neðri deild: 51. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (849)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Sigurður Eggerz:

Það verða aðeins örfá orð. Jeg hefi altaf litið á það sem mikla nauðsyn, að stofnaður yrði landbúnaðar- og fasteignabanki. Nú hefir hæstv. forsætisráðh. lýst yfir því, að það sje hugsun stjórnarinnar að hrinda þessu máli í framkvæmd, og tel jeg það vel farið. Þetta hefði átt að eiga sjer stað fyr, og hefði þá átt að hafa seðlaútgáfuna í sambandi við fasteignabankann.