06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (959)

29. mál, jarðræktarlög

Lárus Helgason:

Eins og hv. frsm. (JörB) mintist á, hefir mikið verið deilt um þetta mál, en þar sem nú er fengið samkomulag milli þeirra aðilja, sem greindi á, get jeg fallið frá því að fara frekar út í málið. Þó að jeg hafi skrifað ýmislegt hjá mjer, sem jeg ætlaði að svara, sje jeg, að þarflaust er að ræða málið frekar, úr því sem komið er.