21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (1140)
13. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Jón Þorláksson:
Jeg tel brtt. á þskj. 154 til bóta og mun greiða henni atkv. En þó er eitt ákvæði í henni, sem jeg mundi heldur hafa kosið öðruvísi. Jeg get sem sje ekki fundið í huga mínum full rök fyrir því, að heimila hafnarsjóði að taka stærri hlut af stórum bátum en litlum. Í brtt. er gert ráð fyrir, að heimild sje veitt til þess að innheimta sem hafnargjald 1/2 hlut af bátum, sem eru 8 smál. eða stærri, en af smærri bátum en 8 smál. 1/4 hlut, þar með taldir róðrarbátar. Jeg get skilið þetta, ef hlutaskifti eru færri á smærri bátunum, hlutfallslega við afla. En jeg held, að ekki sje nein föst regla um hlutaskiftin, og hygg því, að tilætlunin sje sú, að taka hlutfallslega meira af stóru bátunum.
Eftir því áliti, sem hingað til hefir verið á Húnaflóa til sjósókna, álít jeg, að eigi sje rjett af löggjafarvaldinu að gera nokkuð til þess að ýta undir það, að frekar verði notaðir smábátar þar en stærri bátar. Þótt jeg bendi á þetta, mun jeg greiða brtt. atkv., af því að þetta er 3. umr.
Um brtt. hæstv. fjmrh. vil jeg segja það, að það er svo mikið íhaldsbragð að henni, að síst mætti vænta þess, að formaður Íhaldsflokksins yrði til þess að andmæla henni. Þó finst mjer þar of langt gengið í íhaldsáttina. Get jeg ekki felt mig við það, að til þess að sýslan taki að sjer ábyrgðina þurfi aukinn meiri hl. að standa á bak við. Hygg jeg, að þetta sje ekki neitt alment ákvæði í sveitarstjórnarlögunum, og finst mjer ástæðulaust að setja slíkan tortrygnisstimpil á þetta fyrirtæki. Ef sýslunefnd samþ. ábyrgðina með 2/3 atkv., finst mjer ekki ná nokkurri átt að gera slíka samþykt ómerka og að aðalfundur, sem kemur saman ári seinna, þurfi að endurtaka samþyktina með sama meiri hl. til þess að hún verði gild. Mjer finst slík varúð ganga úr hófi fram. Þó veit jeg ekki, hvort slíkt ákvæði gæti orðið fyrirtækinu að falli; til þess er jeg ekki nógu kunnugur afstöðu manna til þess í Húnavatnssýslu. En eftir legu Skagastrandar væri ekki ólíklegt, að nokkur hluti sýslunefndarmanna væri málinu ekki fylgjandi, þar sem þeir mundu ekki álíta það sjerstakt hagsmunamál fyrir sína hreppa. Jeg get því ekki greitt brtt. hæstv. ráðh. atkv. mitt, því að jeg tel seinna ákvæðinu í brtt. alveg ofaukið og finst engin ástæða til þess að heimta aukinn meiri hl. um þessa ábyrgð, þegar slíkt er ekki gert um önnur fyrirtæki, er geta orkað eins mikils tvímælis og þetta.