04.05.1929
Efri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2552 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)

23. mál, gjaldþrotaskifti

Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta er nú aftur komið hingað frá hv. Nd., sem að vísu hefir gert á því nokkuð margar breyt., en það stendur svo á með þær, að það eru að mestu leyti orðabreyt., að sumu leyti lagfæringar, en mjög litlar efnisbreyt.

Það virðist svo, sem frv. þetta hafi fengið góðan byr í hv. Nd., sem hefir samþ. frv. með töluverðum meiri hl. atkv., en þrátt fyrir þær breyt., sem hv. Nd. hefir gert á frv., sjer meiri hl. allshn. ekki ástæðu til annars en leggja til, að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir.