22.03.1929
Neðri deild: 29. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2555 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)

77. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Flm. (Hannes Jónsson):

Jeg finn enga ástæðu til þess að fylgja frv. þessu úr hlaði með langri ræðu, þar sem þegar eru komnar fram við það margar brtt. Tel jeg því heppilegra, að það verði athugað í nefnd og leitað um það umsagnar landssímastjóra, áður en það verður tekið til frekari umr.