15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2574 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)

77. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Samgmn. hefir ekki borið sig saman um breyt. þær, er hv. Ed. gerði á frv. Hinsvegar hefi jeg átt lauslegt samtal við landssímastióra um þær. Hann telur þær skifta litlu máli, en sumstaðar sje þó órannsakað, hvar rjettast sje að leggja línurnar, og geti þar orðið einhver breyt. á legu þeirra frá því, er stendur í frv. En að öðru leyti lagði hann ekki móti frv., og tel jeg rjett að samþ. það óbreytt.