27.03.1929
Efri deild: 33. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (139)
5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna
Jón Baldvinsson:
Umræðurnar um frv. þetta við 2. umr. þess snerust aðallega á þá lund, bæði hjá hæstv. forsrh. og íhaldsmönnum deildarinnar, að þrengja verkefni þess. En af því að jeg vakti máls á því í nefndinni, hvort ekki væri hægt að setja í samband við rannsókn þá, sem frv. ræðir um, rannsókn og eftirlit á innfluttum matvælum, vil jeg einnig láta þá ósk koma fram í þinginu. Það, sem fyrir mjer vakir, er það, hvort ekki sje hugsanlegt að koma á eftirliti með matvælum, sem flutt eru inn í landið, svo sem kartöflum, mjölvöru o. fl. Tel jeg slíkt eftirlit nauðsynlegt til þess að ganga úr skugga um, að hinar innfluttu vörur sjeu boðlegur mannamatur. Slíkt eftirlit er í öllum siðuðum löndum, og verða vörurnar að fullnægja þar vissum kröfum, sem til þeirra eru gerðar. Jeg hefi nú alls ekki borið neina till. fram í sambandi við frv. um þetta eftirlit. En meining mín er sú, að þetta eftirlit sje tekið upp eins fljótt og hægt er. Það má vel vera, að það megi koma því fyrir á annan hátt en í sambandi við rannsóknir þær, sem frv. gerir ráð fyrir. Vil jeg því beina þeirri ósk minni til hæstv. stjórnar, að hún taki til yfirvegunar, hvernig slíku eftirliti verði best fyrir komið. Eins og kunnugt er, er töluvert eftirlit haft hjer í Reykjavík með sölu innlendra matvæla og sjerstakur maður hefir þetta eftirlit á hendi. Meðal þeirra vara, sem þannig er haft eftirlit með, er mjólk, kjöt, brauð o. fl. Er því ekki nema eðlilegt, að eftirlit sje haft með því, að sú matvara sem hingað flytst frá útlöndum, sje einnig óskemd og boðleg vara.
Það má vel vera, að jeg hreyfi þessu máli aftur, ef stjórnin tekur það ekki til athugunar.