27.03.1929
Efri deild: 33. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
5. mál, rannsóknir í þarfir atvinnuveganna
Jón Baldvinsson:
Aðeins örfá orð til hv. 5. landsk. Jeg vissi ofurvel, hvað hann talaði við 2. umr. þessa máls hjer í deildinni. Það var það sama og hann sagði í nefndinni. En skoðanir hv. 5. landsk. urðu í minni hluta við atkvgr. En nú hefir hæstv. forsrh. lagt aðaláherslu á einn lið þeirra rannsókna, sem frv. gerir ráð fyrir. Og þar sem orð hans eru það eina, sem hægt er að halda sig að viðvíkjandi framkvæmd þessa máls, þykist jeg hafa fulla ástæðu til að ætla, að verksvið stofnunarinnar eigi fremur að þrengjast en víkka. Því vildi jeg eigi láta undir höfuð leggjast að láta það koma fram aftur, sem fólst í nál. meiri hl. nefndarinnar.