17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2667 í B-deild Alþingistíðinda. (1459)

125. mál, fjáraukalög 1928

Frsm. (Páll Hermannson):

Jeg skal fúslega viðurkenna það, sem hv. þm. Seyðf. sagði í ræðu sinni. Það lágu ekki fyrir skjöl viðvíkjandi öllum liðum frv. En þrátt fyrir það tók n. ákvörðun þá, sem felst í nál., og jeg veit ekki til, að nokkur einstakur nm. hafi gert aths. um þetta atriði í fundarbókinni. Sem frsm. fann jeg enga ástæðu til þess að taka þetta sjerstaklega fram. Jeg lít svo á, að hv. þm. Seyðf. hafi gert þessa aths. sem einstakur nm. og sem þm., en ekki í nafni n.