15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2677 í B-deild Alþingistíðinda. (1479)

140. mál, lánsheimild fyrir ríkisstjórnina

Halldór Stefánsson:

Jeg vil aðeins geta þess, að samkv. ósk hæstv. fjmrh. tók fjhn. Nd. þetta mál til athugunar þegar eftir að það var afgr. frá Ed., og allir þeir, sem á fundi mættu, mæltu eindregið með því, að frv. nái fram að ganga. Sömuleiðis hygg jeg, að jeg geti sagt eftir samtali við hina nm., að þeir muni ekki leggjast á móti málinu.