06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)
19. mál, landsreikningar 1927
Magnús Jónsson:
Það er nú orðið langt um liðið, síðan jeg var yfirskoðunarmaður landsreikningsins, svo að jeg er farinn að ryðga í ýmsu, sem þá bar á góma, en svo mikið man jeg, að við yfirskoðunarmennirnir gerðum þá fyrirspurn viðvíkjandi því, að þessi upphæð skyldi hvergi koma fram. Við fengum þau svör, að innheimtustofa Manschers teldi skuldina tapaða með öllu. Við þetta var ekkert að athuga, enda mun öllum hafa komið saman um, að þetta væri töpuð skuld. En við gerðum þó þá aths. um þetta, að ekki væri rjett bókfærsluaðferð að láta þessa skuld hverfa, heldur ætti að tilfæra hana sem tapaða. Annars sje jeg ekki, að þetta geti verið neinum til ámælis, og þó að hjer hafi verið notuð skökk aðferð, skiftir það ekki máli, úr því sem komið er.