29.04.1929
Efri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2723 í B-deild Alþingistíðinda. (1566)
111. mál, brunamál
Frsm. (Páll Hermannsson):
Þetta frv. er komið frá Nd. og var flutt þar af hv. 1. þm. N.-M., sem líka er forstjóri fyrir tryggingarstofnun ríkisins og því vel kunnugur þessum málum. Ástæðan fyrir því, að þetta frv. er fram komið, er sú, að ákvæðum laga nr. 85 frá 1907 um brunamál hefir þótt slælega fylgt hingað til, sjerstaklega þeim ákvæðum, er lúta að tryggingum og vörnum gegn brunahættu. Eftir þeim lögum eiga sveitar- og bæjarstjórnir að hafa eftirlit með því, að þessum ákvæðum væri fylgt, en á því hefir þótt verða eigi alllítill misbrestur. Þetta frv. fer aðeins fram á, að gerðar verði ráðstafanir til þess að bæta úr þessu og sjá um, að þessum ákvæðum um tryggingar og varnir gegn brunahættu verði fylgt betur en hingað til. Fjhn. hefir viljað fallast á þetta og mælir því með frv. í öllum meginatriðum.
Eftir frv. er gert ráð fyrir, að kostnaður, sem leiðir af þessu eftirliti skuli greiðast að hálfu leyti úr ríkissjóði og að hálfu af Brunabótafjel. Íslands. N. leit svo á, að í byrjun væri þetta ákvæði rjettlátt. Meðan verið er að kippa þessu í lag og bæta úr því, sem hingað til hefir verið áfátt í þessum efnum, þá virðist mjög sanngjarnt, að ríkið leggi til þess nokkurt fje. En eftir að brunavarnir eru komnar Í sæmilegt horf og samkv. ákvæðum laganna, þá virðist rjettlátt, að Brunabótafjelagið sjálft taki eftirlitið að fullu í sínar hendur og greiði allan af því leiðandi kostnað. Með hliðsjón af þessum skilningi hefir nefndin leyft sjer að bera fram brtt. á þskj. 419, þar sem ákveðið er, að ríkið greiði kostnaðinn að helmingi á móti Brunabótafjelaginu fram til ársloka 1931. N. var á þeirri skoðun, að ef sá tími væri notaður vel, þá myndi hann nægja til þess að hægt væri að koma skipulagi á tilhögun og framkvæmd þessara mála í heild, og lægi þá beinast við, að Brunabótafjelagið annaðist eftirlitið upp frá því.
N. lítur einnig svo á, að æskilegast væri, að framkvæmdir væru hafnar þegar í stað og að láta ekki dragast að koma ákvæðunum um brunavarnir í gott horf. Með hliðsjón af þessari skoðun hefir n. flutt brtt. þess efnis, að lögin öðlist gildi þegar í stað, svo að framkvæmdir geti þegar byrjað.
Jeg minnist svo ekki að þurfa að segja fleira fyrir n. hönd, nema það, að n. leggur það til, að frv. nái fram að ganga með þeim breyt., sem n. hefir borið fram.