02.05.1929
Efri deild: 59. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (1589)
115. mál, íbúð í kjöllurum
Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):
Hv. 3. landsk. er að sjálfsögðu miklu byggingarfróðari maður en jeg, og tjáir mjer ekki að deila við hann um það. Þó skal jeg geta þess, að það er ekki meiningin með frv. að breyta ákvæðum byggingarsamþykta, svo að þau ákvæði haldast áfram, er banna að byggja hús of nálægt hvert öðru. Það getur verið rjett, að fyrsta sporið til að útrýma kjallaraíbúðum sje að banna að byggja þær í nýjum húsum. En aðalatriðið fyrir okkur var það, að losna við verstu og hættulegustu íbúðirnar. Lögðum við ríkari áherslu á það en hitt, að banna sæmilegar íbúðir, þó í kjöllurum væru. Og við hefðum þar gjarnan viljað vera samferða form. okkar og stytta tímann ofan í 20 ár, en við treystumst ekki til þess. Það getur haft slæm áhrif á leigukjör. Hús þau, er bygð hafa verið, hafa orðið dýr og menn því orðið að haga þeim svo, að sem mest væri upp úr þeim að hafa.