06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2774 í B-deild Alþingistíðinda. (1623)

109. mál, innflutningur sauðnauta

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Með því að liðið er fram yfir venjulegan fundartíma, þykir mjer rjett að geyma greinargerð fyrir þessu frv. til 2. umr. Með því að málið kemur frá n., sje jeg ekki ástæðu til að vísa því til n. nú, en legg til, að því verði tafarlaust vísað til 2. umr.