16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2849 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)
122. mál, Menningarsjóður
Sigurður Eggerz:
Jeg vil aðeins taka í sama streng og aðrir, að jeg álít, að ekki sje hægt að samþ. þessa dagskrártill. Með því að samþ. hana yrði skapað slæmt og óheppilegt fordæmi.
Að því er snertir lögskýringar, þá byggjast þær fyrst og fremst á orðunum, en ef orðin eru tvíræð eða margræð, þá koma II. flokks skýringar til greina, eins og þingvilji o. fl.
Annars ætla jeg ekki að halda lengri ræðu, vildi aðeins vekja eftirtekt á því, að jeg tel, að ekki sje hægt að samþ. dagskrártill. þá, sem hv. meiri hl. hefir borið fram á þskj. 634.