02.04.1929
Efri deild: 34. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2956 í B-deild Alþingistíðinda. (1909)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Hv. þm. Snæf. taldi, að ekki þyrfti að fullskipa stj. fyr en síðar, í vor eða sumar. En þess er að gæta, að ekki er nægilegt að ákveða, að útgerðarmenn skuli eiga fulltrúa í stj. verksmiðjunnar, heldur þarf einnig að setja ákvæði um, eftir hvaða hlutföllum hann skuli kosinn, en um þau hlutföll er ekki hægt að segja fyr en eftir eitt ár, er verksmiðjan er tekin til starfa. Annars er jeg þakklátur hv. þm. Snæf. fyrir, að hann skuli hafa tekið brtt. sína aftur.