01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3014 í B-deild Alþingistíðinda. (1936)

4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar

Pjetur Ottesen:

Jeg þurfti sjerstaklega að víkja nokkrum orðum að hæstv. forsrh.; en af því að hann er ekki viðlátinn hjer í deildinni, og að líkindum bundinn við eldhúsdagsumr. í Ed., þá kæri jeg mig ekki um að tala hjer yfir tómum stólum, en vil óska eftir því, að hæstv. forseti gefi fundarhlje.