04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3403 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)

37. mál, verkamannabústaðir

Jón Sigurðsson:

Jeg vil benda á það, að hæstv. forseti feldi úrskurð á þinginu í fyrra í samskonar þrætu og hjer liggur fyrir. Mig minnir, að það væri í umr. um fjárl., en það skiftir ekki miklu máli. Jeg hafði þá tekið upp till. annars þm. og forseti úrskurðaði, að hún skyldi berast undir atkv. Með þeim úrskurði er fengið fullkomið fordæmi fyrir því, sem hjer liggur fyrir.