04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3407 í B-deild Alþingistíðinda. (2120)

37. mál, verkamannabústaðir

Forseti (BSv):

Jeg vil gefa þá skýringu, að það hefir ekki verið bókað í fundarbókinni, að þessar brtt. hafi verið afturkallaðar; og þess vegna hafa þær slœðst með inn á dagskrána. Jeg segi þetta aðeins til þess að upplýsa málið. Það hafa nú þegar farið fram ærnar umr. um þetta, en af því að það er laugardagskvöld, þá mega þdm. gjarnan veita sjer þá skemtun að halda umr. áfram.