04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3409 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)

37. mál, verkamannabústaðir

Forseti (BSv):

Út af því, sem hv. þm. Dal. sagði, skal jeg taka það fram, að það sannar ekkert, þó að um þetta hafi ekki verið bókað. Annars er þýðingarlaust að þrefa lengur um þetta. Það verður ekki kveðinn upp annar úrskurður.