18.02.1929
Neðri deild: 1. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)

Sætaskipun

Forseti (BSv):

Í þingsköpum vorum er ekki gert ráð fyrir því fyrirkomulagi, sem hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) leggur til, og getur það því eigi komið til greina nú. Verður því að fara fram atkvgr. um þá tillögu, sem fram er komin, að heimila afbrigði frá þingsköpum í þessu efni.