18.04.1929
Neðri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3490 í B-deild Alþingistíðinda. (2209)

Umræður utan dagskrár

Gunnar Sigurðsson:

Jeg get alls ekki kannast við, að hæstv. forseti hafi þrásinnis átt tal við mig um þetta mál. En eins og kunnugt er, hefir nefnd sú, sem jeg er form. í, svo mikið að gera, að hún kemst varla yfir alt, sem til hennar hefir verið vísað. Hafa því annir nefndarinnar valdið þeim drætti, sem orðið hefir á áliti meiri hl. hennar í þessu máli.