17.05.1929
Sameinað þing: 6. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3495 í B-deild Alþingistíðinda. (2225)

Kosningar

Jón Baldvinsson:

Á dagskránni stendur, að kosið skuli samkv. 2. gr. laga nr. 8, 15. apríl 1928, um einkasölu á útfluttri síld, og skilst mjer því, að eftir þeim lögum eigi að fara um þetta. Á þá að leggja fram lista, en á þeim listum þarf ekki að vera nema eitt nafn.