18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3498 í B-deild Alþingistíðinda. (2233)

Starfslok deilda

Ingvar Pálmason:

Fyrir hönd mína — og jeg vona deildarinnar allrar — vil jeg leyfa mjer að þakka hæstv. forseta fyrir röggsamlega og góða stjórn á fundum deildarinnar á þessu nú endaða þingi. Vil jeg leyfa mjer að óska þess, að þeir hv. þdm., sem taka undir þessi orð mín, geri svo vel að standa upp.

Allir þdm. stóðu upp.