05.04.1929
Neðri deild: 37. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (23)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil aðeins geta þess, að yfirlýsing sú, er jeg gaf í gær, var í beinu áframhaldi af dæmi því, er hv. 2. þm. Skagf. tók þá, eftir því sem jeg skildi það. Annars skal jeg ekki fara frekar út í þetta, en skal geta þess, að jeg er ávalt reiðubúinn til þess að tala um nýjar leiðir í þessu máli við hv. þm., ef líkur eru til, að þær megi leiða til betra samkomulags.