14.03.1929
Neðri deild: 22. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2344)

38. mál, tekju- og eignarskattur

Haraldur Guðmundsson:

Jeg vildi aðeins beina þeirri fyrirspurn til hv. þm. Dal., hvort Íslandsbanki álíti frv. um dóm í vinnudeilum vera sitt sérstaka hagsmunamál. Ummæli þessa hv. þm. gáfu tilefni til þess að ætla, að svo væri.