07.05.1929
Neðri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (2448)

81. mál, bann gegn líkamlegum refsingum

Hákon Kristófersson:

Jeg ætla ekki að svara hv. þm., en þess vænti jeg fastlega, að enginn af flokksbræðrum mínum hafi nokkru sinni farið eins svívirðilegum orðum um mig og einn af merkustu flokksbræðrum hv. þm. ljet falla um þennan hv. þm. í mín eyru fyrir tæpri viku síðan.