12.03.1929
Efri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í C-deild Alþingistíðinda. (2579)

60. mál, einkasala á lyfjum

Flm. (Jón Baldvinsson):

Jeg gleymdi áður að geta um afstöðu landlæknis til þessa máls, en nú spurði jeg hann hver hún væri, og fjekk það svar, að hún væri sú sama og 1921. Vildi jeg aðeins upplýsa um þetta atriði, og einnig að í 4. gr. laga þeirra, er vísað er til í frv., er það tekið fram, að forstöðumaður lyfjaverslunarinnar eða aðstoðarmaður hans, skuli hafa lyfsalapróf.