22.02.1929
Neðri deild: 5. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í C-deild Alþingistíðinda. (2693)

1. mál, lánsfélög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þetta frumvarp stendur í beinu sambandi við það frv., sem hjer var til umræðu næst á undan. (Frv. til 1. um landbúnaðarbanka Íslands). Sami maður hefir unnið að báðum frv.

Jeg sje ekki ástæðu til að ræða frv. nánar, en vísa til greinarg. þess, og leyfi mjer að leggja til, að því verði, að þessari umræðu lokinni, vísað til hv. landbn.