22.02.1929
Neðri deild: 5. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í C-deild Alþingistíðinda. (2695)

1. mál, lánsfélög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Háttv. þm. N.-M. spurði, hvort þetta frv. væri flutt til þess að koma í veg fyrir skuldaverslunina. Jeg get svarað því svo, að talið er, að sú leið, sem bent er á í því, sje heppileg leið til að beina lánsfje til sveitanna. Það fyrirkomulag, sem í frv. felst, hefir verið reynt í öðrum löndum og gefist vel.