19.03.1929
Neðri deild: 26. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í C-deild Alþingistíðinda. (2787)

6. mál, hveraorka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þessi krói, sem okkur líst báðum svona illa á og öllum þykir svo ljótur, er hreinræktað fóstur Íhaldsflokksins, og form. Íhaldsflokksins hefir sjálfur sett sinn svip á hann. Jeg var ekki í hv. Ed. þegar rætt var um þetta mál þar, en þá var það form. Íhaldsflokksins, sem lagði þá regináherslu á að fá felt burtu þetta eina orð, sem menn nú svo mjög sakna.