08.04.1929
Neðri deild: 39. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (295)
45. mál, einkasími í sveitum
Frsm. (Hannes Jónsson):
Frv. þetta er fram borið í Ed. og hefir gengið gegnum þá hv. deild með litlum breyt. Þó hefir verið gerð á því að minsta kosti ein breyt., sem má segja, að orkað hafi tvímælis um, hvort rjett sje eða ekki. N. vildi nú samt ekki gera neinar brtt. við það, en mun athuga til 3. umr., hvort ekki væri ástæða til að breyta eitthvað tengigjaldinu. Tengigjaldið var upphaflega ákveðið 5 kr., en Ed. hækkaði það upp í 10 kr. Jeg get fallist á, að það sje rjettmætt, ef um 2. eða 1. fl. stöð væri að ræða, sem línan næði sambandi við; en ef um tengingu við 3. fl. stöð er að ræða, þá virðist nokkuð hátt reiknað að taka 10 kr. tengigjald, því að það er öllum mönnum vitanlegt, að svo miklu minni not verða af einkasímanum, ef um 3. fl. tengistöð væri að ræða.
Um frv. í heild sinni er ekki ástæða til að ræða svo mikið. Hv. þdm. hafa sjálfsagt kynt sjér það; það er vel undirbúið og landssímastjóri hefir mælt með því, og virðist því ekki vera ástæða til annars en að láta það ná fram að ganga, enda hygg jeg, að allur fjöldi manna sje á einu máli um það, að nauðsynlegt sje að efla sem mest símasamband úti um land, eins og reyndar öll önnur samgöngutæki.
Jeg ætla svo ekki að fjölyrða meira um þetta, en í þessu eina atriði, sem jeg gat um áðan, þá mun n. athuga til 3. umr., hvort ekki sje ástæða til að flytja brtt. En að sjálfsögðu mun hún í því efni fara eftir till. landssímastjóra.