16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í C-deild Alþingistíðinda. (3268)
117. mál, skipun barnakennara og laun
Fjmrh. (Einar Árnason):
Þetta mál er sýnilega skilgetið afkvæmi ljósmæðrafrumvarpsins. Með ljósmæðrafrumvarpinu var gerð tilraun til þess að koma fram hagsmunum einnar stjettar, sem launuð er af opinberu fje, og þegar byrlega blæs fyrir henni, þá kemur mesta stjett og svo koll af kolli. Nú eru það barnakennararnir, sem eru næsta sporið, og svo kemur áreiðanlega ný stjett. Það lítur svo út, að Alþingi hugsi sjer að afgreiða öll þessi mál á þann veg, að tekin sje af handahófi ein og ein stjett og henni ákveðin launahækkun. Nú er það vitanlegt, að að því mun reka innan skamms, að öll launalögin verði tekin til athugunar, og fyndist mjer eðlilegt, að þetta væri látið bíða þangað til. Jeg veit að vísu, að það þýðir ekki að deila við fjölmenna n., sem leggur með frv., en jeg vildi samt lýsa afstöðu minni til málsins. Jeg tel sjálfsagt að fella frv., og álít að þessi leið til þess að endurbæta launakjör starfsmanna ríkisins sje mjög óheppileg.